|
Hraungerðiskirkja er í Hraungerðisprestakalli í
Árnesprófastsdæmi. Hún var byggð 1902 á hlöðnum grunni úr
timbri og tekur 150 manns í sæti. Eiríkur Gíslason frá Bitru
smíðaði hana. Sigurgrímur, bróðir hans, vann líka við
smíðina og prédikunarstóllinn er sveinsstykki hans.
Katólskar
kirkjur í Hraungerði voru helgaðar Pétri postula. Útkirkja var í
Laugardælum, þar sem var áður aðalkirkja og staður fram til
1752. Árið 1956 var prestssetrið flutt að Selfossi.
Séra Sigurður
Thorarensen (1789-1865) var prestur í Hraungerði 1839-60. Talið
er, að hann hafi verið aðalhvatamaður að innflutningi enskra hrúta til
kynbóta. Með þeim barst fjárkláðinn til landsins og olli
gífurlegu tjóni. |