|
Hrepphólakirkja er í Hrunaprestakalli í
Árnesprófastsdæmi. Hún var byggð 1909 úr járnvörðu timbri.
Altaristaflan er eftir Ásgrím Jónsson, listmálara.
Katólskar
kirkjur voru helgaðar Ólafi helga Noregskonungi. Útkirkja var á
Hofi í Gnúpverjahreppi en hún var aflögð um aldamótin 1800 og
sóknin lögð til Hrepphóla. Hrepphólaprestakall var lagt niður
1880 og nú er þar útkirkja frá Hruna.
Jörðin Hrepphólar er landnámsjörð. Meðal þeirra,
sem lögðu hönd á plóginn við byggingu kirkjunnar var Rögnvaldur
Ólafsson, húsameistari.
Hinn 29. desember 1908 geisaði gífurlegt fárviðri í Árnesþingi og þá
fauk hluti kirkjunnar. Hún var síðan reist aftur úr efninu, sem
fauk en styttist við það um fimmtung. |