|
Hrunakirkja er í Hrunaprestakalli í
Árnesprófastsdæmi. Hún var byggð 1865 úr járnvörðu timbri og
tekur 200 manns í sæti. Katólskar kirkjur á staðnum voru
helgaðar Maríu guðsmóður, Tómasi erkibiskupi, Þorláki helga og
heilagri Katrínu. Tungufellskirkja hefur verið útkirkja síðan
1819 og í Hrepphólum síðan 1974. Altaristaflan er meðal margra
góðra gripa kirkjunnar.
Sögur segja, að kirkjan hafi staðið uppi
á klettahæð, sem nefnist Hruni, og þar sé hægt að sjá
Hrunakarlinn í klettunum. Á þessum tíma var þar prestur, sem
hélt dansleik með sóknarbörnunum í kirkjunni á jólanótt með
drykkju, spilum og annarri ósæmilegri hegðan. Eitt sinn stóð
dansleikurinn óvenju lengi og kölski kom til skjalanna. Hann gretti
sig framan í kirkjugesti og dró kirkjuna með öllum, sem voru í
henni, niður í undirdjúpin. Indriði Einarsson samdi leikritið „Dansinn
í Hruna" upp úr þessari sögu. |