|
Hveragerðiskirkja er í Hveragerðisprestakalli í
Árnesprófastsdæmi. Hún var byggð á árunum 1967-1972 og var
vígð 14. maí. Árið 1941 var prestssetrið flutt frá Arnarbæli
til Hveragerðis og bærinn varð sérstök sókn 1941.
Útkirkjur eru
á Kotströnd, Hjalla og Strönd. Arkitekt núverandi kirkju var
Jörundur Pálsson og Jón Guðmundsson var byggingameistari. Kirkjan
er úr steinsteypu og rúmar 200 manns í sæti. Söngloft er stórt
og gott og rúm er fyrir 80-100 manns í hliðarsal, sem er
safnaðarheimili með eldhúsi. Skírnarsárinn er stuðlabergssúla
með ígreiptri silfurskál. Altarið er úr slípuðum grásteini. |