|
Hvítasunnukirkjan í Vestmannaeyjum var stofnuð
1. janúar 1926. Kirkjan spratt upp af trúboðsstarfi sem norskur
maður, Eric Åsbö, hóf í júní 1921. Hann fékk vitrun frá Guði
með þeim hætti að hann sá loftsýn af byggð á Íslandi undir
eldfjalli. Honum var sagt að fara þangað og prédika
fangaðarerindi Jesú Krists með úthellingu Heilags anda. Guð
ætlaði að endurreisa söfnuð sinn með endurnýjungu
náðargjafanna. Hann dvaldi einn vetur (1920-21) í Reykjavík þar
sem allt virtist ganga á afturfótunum og ætlaði því að yfirgefa
Ísland um vorið 1921 fullviss um að sýnin hafi verið tál eitt.
Hann steig á skipsfjöl að kveldi dags í Reykjavík og vaknaði
sólríkan morgun við Vestmannaeyjar. Þegar honum var litið út um
kýraugað á klefanum þá sá hann landslagið sem hann þekkti frá
sýninni eða vitruninni. Hann steig í land og um kvöldið hóf hann
að prédika boðskap eins og Biblían talar um, þ.e. synd,
réttlæti og dóm Guðs.
Uppúr þessu fóru um eitt hundrað manns að
mæta að staðaldri á samkomur og gekk svo fram í 5 ár. Árið
1925 var kirkjuhús byggt og var það vígt á stofndegi safnaðarins.
Þeir fyrstu í safnaðarstjórn voru Níls Ramselíus, Kristján
Jónsson og Guðjón Hafliðason, gjaldkeri.
Tilgangur safnaðarins er að kunngera Biblíuna
sem allt Guðs ráð og lifa samkvæmt orðum Jesú Krists og
lífsmáta. Við inngöngu í söfnuðinn er fólki niðurdýft í
vatn (skírt) samkvæmt Matteusarguðspjalli 28:19 þar sem Guð
almáttugur er opinberaður sem þríeinn Guð: Faðirinn, Sonurinn og
Heilagur andi. Fyrsta niðurdýfing safnaðarins var 19. febrúar 1926
og hefur verið síðan eftir beiðni þeirra sem vilja láta skírast
samkvæmt forskrift Biblíunnar.
En öllum þeim, sem tóku við honum (Jesú), gaf
hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, er trúa á nafn hans.
- Jóhannesarguðspjall, 1:12.
Þú ert hjartanlega velkominn í
Hvítasunnukirkjuna í Vestmannaeyjum!
Kynntu þér samkomutíma okkar og láttu sjá þig. Drottinn blessi
þig!
|