|
Kirkjulækjarkot er
safnaðarmiðstöð hvítasunnuhreyfingarinnar á Íslandi,
Örkin. Á
staðnum er skáli með svefnaðstöðu sem rúmar á annað hundrað
manns. Næg tjaldstæði eru einnig á svæðinu og aðstaða fyrir
tjaldvagna og húsbíla. Örkin í Kirkjulækjarkoti
var áður Tívolí
í Hveragerði. Örkin
er alls 3000 fermetra með
kjallara.
Í Kotinu há hvítasunnumenn mót
á eigin vegum með reglulegu millibili. Auk þess hefir aðstaðan
verið leigð út til ýmissa annarra kristinna safnaða. Mótshald
hvítasunnumanna Í Kirkjulækjarkoti er löngu rómað fyrir
líflegar samverustundir sem taka mið af allri fjölskyldunni.
Léttur söngur einkennir samverustundirnar ásamt góðri
trúarfræðslu og fyrirbænaþjónustu. Kvöldvökur eru haldnar á
hverju móti fyrir yngri kynslóðina, kveiktur varðeldur auk fjölda
annarra atriða.
Um hverja verslunarmannahelgi fer aðalmót
hvítasunnuhreyfingarinnar fram í Kirkjulækjarkoti - „Kotmótið"
- sem er árlegt landsmót hvítasunnumanna. |