|
Kirkjan er í
Kálfafellsstaðarprestakalli í Skaftafellsprófastsdæmi. Hún var
byggð á árunum 1926-27 og vígð 31. júlí 1927. Hún er byggð
úr steinsteypu og Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins,
teiknaði hana. Sigurjón Jónsson, bóndi í Suðurhúsum í
Borgarhöfn, var yfirsmiður. Patínan í kirkjunni er frá 1761, verk
Brands Jónssonar. Líklega er kaleikurinn lika frá Brandi kominn.
Séra Jakob Bjarnason (1654-1717) gaf kirkjunni líknesi Ólafs helga,
sem er í Þjóðminjasafni. Þá varð það nýtt og líklega
smíðað í Noregi. Það stóð á kórbita kirkjunna í tvær aldir
og var mikilsvirt. Því var komið fyrir á Þjóðminjasafninu eftir
að kirkjan fauk 1886. Katólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar
Ólafi helga. Útkirkjur eru í einholti á Mýrum og á Hofi í
Öræfum. |