|
Kapellan er í Kirkjubæjarklaustursprestakalli
í Skaftafellsprófastsdæmi. Hún var vígð 17. júní 1974 í tilefni
1100 ára Íslandsbyggðar. Ákveðið var að reisa þessa
minningarkapellu árið 1966 á 175. ártíð séra Jóns. Hún var
reist litlu austan við hinn forna kirkjugrunn, sem margir álíta hinn
elzta hérlendis hafi papar átt þátt í honum.
Kapellan tekur 50
manns í sæti. Arkitektar hennar voru Helgi og Vilhjálmur
Hjálmarssynir og Valdimar Auðunsson , bóndi í Ásgarði í
Landbroti, var kirkjusmiður. Nunnuklaustur af Benediktsreglu
var stofnað að Klaustri 1186 og það starfaði allt að
siðaskiptum. Rústir klausturbygginganna sjást enn þá, þar
sem heitir Kirkjuhólar. Kirkja var á Klaustri til 1859, þegar hún var flutt að
Prestbakka. Séra Jón Steingrímsson liggur grafinn í
kirkjugarðinum og legsteinn á gröf hans, fimmstrendur
blágrýtisstuðull. Hann var sóknarprestur, þegar Skaftáreldar
gengu yfir. Eldrit hans er bezta heimild um þessar
náttúruhamfarir.
Margir samtímamanna hans töldu, að hann hefði
stöðvað hraunrennslið í farvegi Skaftár vestan Systrastapa með
kröftugri prédikun í kirkjunni á Klaustri 20. júlí 1783. Hún
hefur síðan verið kölluð Eldmessan. Hraunelfan fann sér framrás
vestar. |