Keldnakirkja,

Meira um Ísland


KELDNAKIRKJA
.

.

Ferđaáćtlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferđaheimur

Keldnakirkja er í Oddaprestakalli í Rangárvallaprófastsdćmi. Keldur voru í Keldnaţingum, sem voru aflögđ 1880 og samtímis var sóknin fćrđ ađ Odda. Katólskar kirkjur voru helgađar Páli postula. Járnvarin timburkirkja, sem nú stendur ţar, var byggđ 1875. Frumkvöđull byggingar hennar var Guđmundur Brynjólfsson, bóndi á Keldum, og yfirsmiđur var Halldór Björnsson frá Felli í Mýrdal. Kirkjan er fremur lítil, enda er söfnuđurinn lítill.

Gert var viđ kirkjuna á árunum 1956-57. Ţá var steyptur grunnur undir hana og henni lyft og settir voru steindir gluggar í hana. Gréta og Jón Björnsson skreyttu og máluđu kirkjuna. Hjörtur Oddsson, snikkari og bóndi í Eystri-Kirkjubć, smíđađi prédikunarstólinn, altariđ og ljósaarma og ártaliđ 1875, ţegar kirkjan var byggđ. Eldri altaristafla (Kvöldmáltíđin; Ámundi Jónsson, snikkari í Syđra-Langholti), frá 1792 er ţar líka, auk nýrrar (eftir danskan málara), sem ber heitiđ Eitt er nauđsynlegt. Á hliđarveggjum eru 15 vegglampar úr birki, sem Elías Tómasson á Uppsölum í Hvolhreppi smíđađi. Báđum megin altaristöflunnar hanga tvö líkneski úr katólskri tíđ. Ţau tákna Maríu guđsmóđur međ Jesúbarniđ og Pál postula. Tvíarma koparstjaki úr kopar er kominn úr Leirubakkakirkju í Landssveit, sem var lögđ niđur 1765. Oblátuöskurnar úr tré eru gamlar, svo og kaleikurinn, patínan og eirskírnarfatiđ. Klukkurnar ţrjár eru frá árunum 1523, 1583 og 1602.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM