|
Kotstrandarkirkja er
í Hveragerðisprestakalli í Árnesprófastsdæmi.
Hún var byggð 1909 og vígð 14. nóvember sama ár.
Hún er úr járnklæddu timbri, um 85 m² og tekur 200 manns
í sæti. Samúel Jónsson
frá Hunkubökkum á Síðu var yfirsmiður.
Gamla altaristaflan er úr Reykjakirkju og Örlygur Sigurðsson
málaði málverkið af séra Ólafi Magnússyni.
Kirkjugarðurinn á Kotströnd þjónar einnig Hveragerði.
Hvergerðingar sóttu Kotstrandarkirkju þar til þeirra kirkja
var tilbúin. Garðurinn,
sem markar kirkjugarðinn á tvo vegu er prýðilega velhlaðinn og
skoðunarverður.
Árið 1909 var ákveðið að leggja niður kirkjurnar að
Arnarbæli og Reykjum og leggja sóknirnar til Kotstrandar.
Séra Ólafur Magnússon sat í Arnarbæli 1903-1940 og var síðasti
prestur þar. Hann þjónaði Kotströnd, Hjalla og Strönd í Selvogi en að
honum látnum hafa prestar setið í Hveragerði og Kotstrandarkirkja
varð að útkirkju þaðan. Í
katólskum sið voru kirkjurnar á Arnarbæli helgaðar heilögum
Nikulási. |