|
Marteinstungukirkja er í Fellsmúlaprestakalli í
Rangárvallaprófastsdæmi. Timburkirkjan, sem nú stendur, var byggð
1896. Hún tekur 80 manns í sæti og endurbætur fóru fram 1955.
Kirkju er fyrst getið í Marteinstungu um 1200 og þá hét bærinn
Tunga og síðar, 1397, Sóttartunga. Katólskar kirkjur á staðnum
voru helgaðar heilögum Marteini, sem er líka nafngjafi bæjarins.
Gömul sögn segir að kirkjan hafi áður
staðið í Pulu, þar sem eru miklar rústir. Um þennan bæ eru
engar aðrar heimildir en þjóðsagan, sem segir, að fólk hafi fallið þar í drepsótt.
Eftir það var mjög reimt og bærinn lagðist í eyði. Talað er um
Sóttarhelli, sem á að vera þar í holtinu og grófin þar var
inngangurinn. |