|
Miðdalskirkja er í Mosfellsprestakalli í
Árnesprófastsdæmi. Kirkjan, sem nú stendur, er lítil timburkirkja,
járnklædd með turni á mæni. Hún tekur 50 manns í sæti og var
byggð og vígð 1869. Guðmundur Þórðarson var yfirsmiður en
Halldór Bjarnason vann aðallega verkið. Altaristaflan er
steinprentuð Kristsmynd í eikarramma (Komið til mín).
Prédikunarstóllinn var gerður 1837.
Gömul altaristafla, sem sýnir
kvöldmáltíðina, hangir á norðurhlið kórs. Hún er talin vera
eftir Ófeig Jónsson á Heiðarbæ í Þingvallasveit og hann
smíðaði líka prédikunarstólinn. Fyrsta prestsins í Miðdal,
Guttorms Finnólfssonar, er getið í heimildum frá 1080. Kolbeinn
Þorsteinsson (1731-1783) var prestur í Miðdal á árunum 1765-1783.
Eftir hann er Gilsbakkaþula (Kátt er á jólum, koma þau senn). |