|
Stokkseyrarkirkja er í Eyrarbakkaprestakalli í
Árnesprófastsdæmi. Hún var byggð 1886 austan við hið forna
Stokkseyrarhlað úr timbri og er þjónað frá Eyrarbakka. Hún
tekur u.þ.b. 150 manns í sæti Í katólskri tíð voru þar
Maríukirkjur.
Kaldaðarnes varð annexía frá Stokkseyri 1856, sem
varð upp frá því heimakirkja með prestssetur á Ásgautsstöðum.
Síðar bjuggu prestarnir á Stóra-Hrauni og voru þá í
Eyrarbakkasókn, sem var stofnuð 1886. |