|
Stórólfshvolskirkja er í
Breiðabólsstaðarprestakalli í Rangárvallaprófastsdæmi. Hún var
byggð úr timbri árið 1930. Yfirsmiður var Guðmundur Þórðarson
frá Lambalæk í Fljótshlíð. Kirkjan tekur 120 manns í sæti.
Árið 1955 var hún endurnýjuð verulega, byggt við hana
skrúðhús og sönglofti bætt í hana. Gréta og Jón Björnsson
skreyttu hana að innan við það tækifæri. Altaristaflan er eftir
Þórarin B. Þorláksson (Jesú og börnin). Á turninum er
ljósaross. Katólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar Maríu
guðsmóður og Ólafi helga, Noregskonungi.
Stórólfshvolsprestakall
var lagt niður 1859 og lagt til Keldnaþinga. Síðan voru bæði
færð til Odda árið 1880. Fyrrum voru þrjár kirkjur í Hvolhreppi,
á Stórólfshvoli, Efra-Hvoli og Móeiðarhvoli. |