|
Úlfljótsvatnskirkja er í Mosfellsprestakalli í
Árnesprófastsdæmi. Hún var byggð á fornu kirkjustæði á
höfða rétt við vatnið í útgröfnum kirkjugarði árið 1914.
Þetta er vegleg timburkirkja með stórum turni, sem bætt var við
hana 1924.
Katólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar Maríu
guðsmóður og henni var þjónað frá Þingvöllum þá og síðar.
Hún er nú annexía frá Mosfelli í Grímsnesi.
Gissur Bjarnason
(1660-1727) þjónaði staðnum um tíma frá Þingvöllum eftir að
hafa verið vikið úr embætti í Meðallandsþingum 1701. Síðar
varð hann prestur í Breiðuvíkurþingum og átti þar í ýmsum
vanda. Hann drukknaði í síki í Kaupmannahöfn.
Á árunum 1929-1933 keypti
Rafmagnsveita Reykjavíkur (nú Orkuveita Reykjavíkur) jörðina
Úlfljótsvatn og vatnsréttindi að vestanverðu í Efra Sogi,
Ljósafossi og Írafossi. Jörðin er talin vera um 1397
ha. Af þeim fimm jörðum sem er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur
í Grafningi liggur Úlfljótsvatn lægst. |