|
Bústaðakirkja í bústaðaprestakalli í
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Fyrsta sunnudag í aðventu 1971
var Bústaðakirkja vígð. Hér er úrdráttur úr byggingarsögu
kirkjunnar eins og hún var við vígsluna. Sóknarnefnd
Bústaðasóknar ákvað 1964 að byggja kirkju og safnaðarheimili
svo fljótt sem við yrði komið. Fengin var lóð úr landi Áshóls,
norðan Bústaðavegar og austan Tunguvegar. Lóðin liggur í
fallegri brekku mót suðri, niður Fossvogsdal. Leitað var til
Teiknistofu húsameistara ríkisins, sem fól verkið þáverandi
starfsmanni sínum, arkitektinum Helga Hjálmarssyni. Var fyrsta
skóflustungan tekin af sóknarprestinum, séra Ólafi Skúlasyni við
hátíðlega athöfn 7. maí 1966.
Síðan hefur á hverju ári verið unnið í
áföngum, eftir því sem mögulegt hefur verið vegna fjármagns.
Strax í upphafi var sóknarnefnd einhuga um að steypa upp og ganga
frá allri byggingunni að utan. Árið 1969 var síðan ákveðið
að ljúka sem fyrsta áfanga kirkjuskipi, forkirkju, andyri og
snyrtiherbergjum ásamt safnaðarsal og kirkjuvarðarherbergi. Myndast
hér einnig bráðabirgðaaðstaða fyrir prest safnaðarins.
Þetta var mikil höfuðnauðsyn, þar sem sóknin
hafði þrefaldast að stærð, og aðstaða prestsins mjög erfið
við að halda uppi eðlilegu safnaðarstarfi og kirkjulífi.
Gólfflötur kjallara er um 640 ferm. Hæðin með sönglofti um 1.040
ferm. Mest lofthæð er 12,5 m., en í kirkjuskipi miðju 9 metrar.
Teknir verða í notkun nú í vetur 500 ferm. eða 2.600 rúmmetrar,
en byggingin öll er 6.200 rúmmetrar. Byggingarnefnd skipa nú Ottó
A. Michelsen, formaður, og séra Ólafur Skúlason sóknarprestur sem
hafa verið frá upphafi og Sveinn Guðmundsson húsgagnameistari.
Öllum þeim sem gert hafa það mögulegt að
reisa slíka kirkju ber að þakka. Gjafirnar eru margar og miklar, og
gefendur er fjölmargir. Sé þeim öllum endurgoldið í þeim anda,
sem heitið er."
Glerlist í Bústaðakirkju
Sú einfalda blanda af sílikatsöltum og
alkalíefnum sem við nefnum gler hefur fylgt manninum frá upphafi
siðmenningar. Gler hefur verið notað til skrauts og hverdagsbrúks,
sem tákn hinnar tæru fullkomnunnar og andstæðar eigindir þess,
harka og gegnsæi, hafa öldum saman heillað helstu skáld og
spekinga. Þjóðsögur og ævintýri eru uppfull af tilvísunum í
gler: Glerkastala og fleira.
Saga íslenskarar glermyndlistar er í raun
fljótsögð. Ekkert bendir til þess að Íslendingar hafi skapað
nokkurn hlut úr gleri fyrr en á þessari öld. Gler hefur hins vegar
verið flutt til landsins og notað í kirkjum og hugsanlega einnig í
híbýlum höfðingja.
Leifur Breiðfjörð er fyrsti íslenski
myndlistarmaðurinn til að helga sig glermyndlistinni, en hann kemur
ekki að henni úr öðrum listgreinum. Hann setti á stofn fyrsta
hérlenda verkstæðið fyrir steint gler. Þótt Leifur sé enn ungur
að árum má segja að hann hafi þegar skapað hefð í íslenskri
glermyndalist. Glermyndir hans prýða á annan tug íslenskra kirkna
og opinberra bygginga, að ónefndum glermyndum í erlendum kirkjum og
stofnunum.
Í sýningarskrá árið 1984 skrifar Leifur svo:
"Frjáls myndsköpun hefur verið mikilvægur hluti starfs míns.
Góð teiknikunnátta og leikni í meðferð lita álít ég að sé
frumskilyrði fyrir gerð góðra glerverka. Áhuga og skilning á
öðrum listgreinum tel ég einnig mikilvægan. Þess vegna finnst
mér nauðsynlegt að skoða söfn og sýningar til þess að víkka
sjóndeildarhringinn og örva ímyndunaraflið. Ég verð ekki
einungis fyrir áhrifum af góðum steindum gluggum, heldur einnig af
allri góðri list."
Glerlistin sjálf yddar formskyn Leifs, gerir hann
færan um að sníða hugmyndir sínar jafnt að gluggaboru á
einkaheimili sem viðhafnargluggum í dómkirkju og ræktar með honum
sérstöku nærgætni gagnvart litunum sem sérhver glerlistamaður
verður að temja sér. Á ferli sínum sem kirkjulistamaður hefur
Leifur Breiðfjörð lagt höfuðáherslu á listrænt gildi steindra
glugga sinna og heildarsamræmið á hverjum stað.
Þegar kom að því að gera gluggana fyrir
Bústaðakirkju, stóð Leifur frammi fyrir því að búa til glugga
og mótíf sem ekki yrðu undir í samkeppni við þunga og
ábúðarmikla steypu kirkjubyggingarinnar. Þar á ofan voru
umræddir gluggar háir og mjóir ljósgjafar sem ekki mátti byrgja
nema að litlu leyti. Leifur leysti þennan vanda með því að nota
að mestu tært gler og ópalgler, sem miðluðu nægri birtu inn í
rýmið. Til að íþyngja ekki gluggunum um of formrænt séð, brá
listamaðurinn sömuleiðis á það ráð að hengja sjálft frumlag
verksins, fíngert krossmark, fyrir framan gluggana og dreifa síðan
smágerðum endurtekningum þess þannig að þær stefna að
hengikrossinum miðjum. Verk þetta er í
heild abstrakt verk unnið með texta úr Opinberunarbók Jóhannesar í
huga. Þó má geta þess að allar meginlínur verksins liggja í átt
að miðju krossins sem hangir fyrir ofan altarið.
Heimilisfang:
Bústaðakirkja V/Tunguveg
108 Reykjavík
Sími: 553-8500, Fax: 553-8501
Netfang: bustada@kirkja.is
Vefsíða: http://www.bustada.kirkja.is
Viðtalstími sóknarprests í kirkjunni mánudaga -
föstudaga kl. 10:00 - 11:30
Netfang sóknarprests: palmi@kirkja.is
Umsjónarmaður safnaðarstarfs er Hreiðar Örn Stefánsson
Netfang umsjónarmanns: bustada@kirkja.is eða hreidar@kirkja.is
Kirkjan er opin:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 09:00 -19:00 og föstudaga kl. 09:00 - 17:
Heimildir:
Vefur Bústaðakirkju. |