|
Digraneskirkja er í
Digranesprestakalli í
Reykjavíkurprófastdæmi eystra. Kópavogur skiptist upphafleg milli
tveggja sókna, Nes- og Laugarnessókna, en árið 1952 varð bærinn
að sérstakri sókn og eftir að íbúum fjölgaði og byggðin
jókst, var henni skipt í tvennt, Kársnes- og Digranessókn.
Digranessöfnuður var stofnaður í ágúst 1971.
Fyrsta skóflustungan
að Digraneskirkju var tekin þann 27. mars 1993 af dr. Sigurbirni
Einarssyni biskupi, og sr. Þorbergur Kristjánsson flutti
ritningarorð og bæn.
Arkitekt
var Benjamín Magnússon. Burðarþolshönnun sá Verkfræðistofa
Guðmundar Magnússonar. Suðurverk hf. sá um jarðvinnslu.
Byggingarmeistari var Hallvarður S. Guðlaugsson, múrarameistari
var Björn Kristjánsson, málarameistari var Guðmundur Helgason,
pípulagningarmeistari var Daníel Guðmundsson og
rafvirkjameistari var Þórður Kjartansson.
Orgel kirkjunnar
er 19 radda pípuorgel með 1128 pípum smíðað af Björgvini
Tómassyni. Hökla kirkjunnar gerði Guðrún Vigfúsdóttir
veflistakona og Elín Þorgilsdóttir
saumaði og gaf altarisdúk sem er á altarinu.
Skírnarskálina gerði Jónína Guðnadóttir myndlistamaður úr
Hafnarfirði. Leó Guðlaugsson Víghólastíg 20 gaf moldunarreku
sem hann míðaði úr rekaviði af
Hornströndum. Guðrún Vigfúsdóttir gaf handofið efni í hvítan hátíðarhökul og
tilheyrandi stólu.
Fyrsti sóknarprestur
við Digraneskirkju var sr. Þorbergur Kristjánsson,
kveðjuguðsþjónusta sr. s Þorbergs var 30
júli, síðan
sr. Gunnar Sigurjónsson,
frá 1. ágúst 1995.
Fyrsti organisti við kirkjuna var Smári Ólason, frá 10. águst
1994 til 31. ágúst 1996. Sólveig S.
Einarsdóttir 1. september 1996 til 31. ágúst 1997 og
Kjartan Sigurjónsson frá
1. september 1997.
1995 var Alda B Indriðadóttir ráðin
húsmóðir í eldhús Digraneskirkju. 11 maí 1997 gaf Rannveig
Sigurðardóttir sóknarnefndarmaður í 26 ár og var að auki í kór
Kópavogskirkju í áratugi í orgelsjóð kr. 100.000.- Hallvarður
Guðlaugsson smíðaði og gaf kertastjaka fyrir páskakerti 1997 og
einnig peninga og bænakassa í anddyri kirkjunnar. Fánastöng var
sett niður við kirkjuna 20. mars, en flaggað var í fyrsta sinni
við messu 22 mars 1998.
Í júní 1998 var sett þjófavarnakerfi í kirkjuna og það tekið í
notkun 29. júní 1998.
Fyrsta kvöldsamvera
með lofgjörðarhópi og altarisgöngu var 9. ágúst 1998. Kapellan
var fyrst notuð fyrir jólatréskemmtun fyrir sunnudagaskólann 20.
desember 1998 og síðan sunnudagaskólann frá 10. janúar 1999. 26.
mars 1999 gaf ELKO kirkjunni sjónvarp og myndbandstæki fyrir orð
Hallvarðs S. Guðlaugssonar.
Sumarið 2000 kom til starfa hjá söfnuðinum
sr. Magnús Björn Björnsson.
Fyrsti kirkjuvörðurinn
var Þórður Kjartansson frá 25. september 1994 til 30 sept 1999.
Frá 1. febrúar
Loftræstingu og pípukerfi
hannaði Lagnatækni, en Ísloft sá um uppsetningu þess.
Rafteikning hannaði raflagnir. Geir Svavarsson hjá Rafís sá um
hljóðkerfi kirkjunnar. Allar innihurðir og innréttingar sá
smíðastofan Beyki um. Byggingarstjóri var Magnús Bjarnason.
Reisugildi kirkjunnar
var haldið 4. desember 1993. og bauð sóknarnefndin upp á
kaffiveitingar.
Kirkjan var vígð 17. sunnudag eftir þrenningarhátíð, 25.
september 1994 kl. 16:00 af Hr. Ólafi Skúlasyni biskupi yfir
Íslandi, sr. Þorbergur Kristjánsson þjónaði fyrir altari ásamt
biskupi, tónlistarflutning fyrir athöfn annaðist Smári Ólason
organisti við Digraneskirkju, Örn Falkner organisti við
Kópavogskirkju og Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri. Við
athöfnina sá Smári Ólason organisti um tónlistarflutnig ásamt
Einari Jónssyni og Jóhanni Stefánssyni á trompet, Guðrún Lóa
Jónsdóttir söng einsöng, ásamt kór Digraneskirkju og kór
Kópavogskirkju.
Heimild:
Vefur Digraneskirkju |