|
Fossvogskirkja er í Reykjavíkurprófastsdæmi
eystra. Hún er
grafarkirkja í eigu safnaðanna í Reykjavíkurprófastsdæmum
Sigurður Guðmundsson, arkitekt, teiknaði hana.
Hún var vígð 31. júlí 1948 og tekur 350 manns í sæti.
Komið var fyrir líkbrennsluofnum í samvinnu við Bálfararfélag
Íslands og þar hefur líkbrennsla farið fram fyrir allt landið síðan
1948. Árið 1980 var
geymsluhúsnæði í vesturálmu breytt í bænhús til afnota fyrir
kistulagningar og fámennar jarðafarir.
Kapella var byggð við norðausturhorn kirkjunnar árið 1983
og er notuð á sama hátt og bænhúsið.
Hún tekur 90 manns í sæti en bænhúsið 50-60.
Austan kirkjunnar er listaverk eftir Einar Jónsson, myndhöggvara.
Það er minnisvarði um þá, sem fórust með Glitfaxa, flugvél
Flugfélags Íslands, árið 1951.
Fossvogskirkjugarður hefur verið í notkun frá því hann var
vígður árið 1932 og tók hann þá við af
Suðurgötukirkjugarði sem þá var fullsettur, þó að grafið
væri þar áfram í frátekin legstæði. Allt fram til
1980, þar til Gufuneskirkjugarður var vígður, var
Fossvogskirkjugarður sá kirkjugarður í Reykjavík, sem
aðallega var í notkun. Fossvogskirkjugarður er nú
fullsettur en þar er áfram grafið í frátekið eins og í
Suðurgötukirkjugarði. Fyrir framan Fossvogskirkju er
afsteypa af Kristslíkneski eftir Bertel Thorvaldsen. |