|
Grindavíkurkirkja er í Grindavíkurprestakalli í
Kjalarnesprófastsdæmi. Frá fornu fari var kirkjustaður á Stað
vestan við Járngerðarstaðahverfi. Árið 1909 var kirkja reist í
Járngerðastaðahverfi og vígð 26. september. Hún var notuð allt
þar til ný kirkja var vígð á horni Austurvegar og Ránargötu 26.
september 1982. Undirbúningur að smíði nýju kirkjunnar hófst
1966 og var Ragnar Emilsson, arkitekt, fenginn til þess að teikna
kirkjuna.
Fyrsta skóflustungan var tekin 1972. Kirkjan er byggð úr
steinsteypu. Byggingameistari var Guðmundur Ívarsson en formaður
byggingarnefndar Ólafur Sigurðsson, múrarameistari. Kirkjan er að
grunnfleti 538 fermetrar og að auki er 49 fermetra kjallari.
Kirkjuskipið sjálft er 255 fermetrar. Í kirkjuskipi eru þrjátíu
bekkir úr oregonfuru og rúmast þar 240 manns. Í norðausturhorni
kirkjunnar er skrúðhús. Safnaðarheimilið, 112 fermetrar að
grunnfleti, kemur hornrétt á kirkjuna út úr suðurhlið hennar,
þar geta kirkjugestir setið við fjölmennar athafnir. |