|
Guðríðarkirkja við
Kirkjustétt í Grafarholtssókn er í
Grafarvogsprestakalli í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Hún
var vígð annan sunnudag í aðventu kl. 14:00 2008.
Kirkjukór og barnakór sóknarinnar söng við athöfnina undir
stjórn Hrannar Helgadóttur og Berglindar Björgúlfsdóttur.
Organisti var Hrönn Helgadóttir.
Hljómskálakvintettinn, Agnes Amalía Kristjónsdóttir, sópran,
og Kristjana Helgadóttir, þverflautuleikari, tóku þátt í
athöfninni. Tveir vígslusálmar, sem kirkjunni bárust
að gjöf voru frumfluttir. Höfundar þeirra eru Sigurjón
Ari Sigurjónsson og Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur.
Jón Ásgeirsson, tónskáld, gerði lag við fyrri sálminn og gaf
það í vígslugjöf. Athöfnin hófst með kirkjugöngu
biskupa, presta og djákna Reykjavíkurprófastsdæmis eystra
með helga gripi kirkjunnar. Hátíðarkaffi var síðan í
Gullhömrum.
Merki
Guðríðarkirkju hannaði
Björg Vilhjálmsdóttir, grafískur
hönnuður, Það er
vínviðarteinungur, sem myndar kross.
Teinungsfléttan vísar til fornrar íslenskrar
útskurðarlistar. Vínviðurinn er Kriststákn í trúarhefðinni
(Jóh.15:1), en minnir líka á sögu
Guðríðar Þorbjarnardóttur, sem kirkjan heitir eftir
og fund Vinlands.
Kirkjan heitir eftir Guðríði
Þorbjarnardóttur, landkönnuði, pílagrími
og einsetukonu á elleftu öld. Nafngiftin
er í anda götuheita og stofnana í Grafarholti, sem
flest bera nöfn tengd fyrstu kristni og landafundum, enda
byrjað á hverfinu, þegar 1000 ár voru
liðin frá kristnitöku og fundi Vínlands. Nöfn herbergja og
sala tengjast sögu Guðríðar, en
garðarnir tveir bera nöfn fornra helgikvæða, Geisla (12.
öld) og Lilju (14. öld).
Ákveðið var að leita nýrra leiða við byggingu
Guðríðarkirkju, sem tryggði söfnuðinum fagurt guðshús þar
sem jafnframt væri gætt mikillar hagkvæmni.
Grafarholtssókn
var stofnuð 22. október 2003 og var dr. Sigríður
Guðmarsdóttir skipuð fyrsti prestur Grafarholtsprestakalls
tæpu ári síðar. Í Grafarholti og Úlfarsfelli búa nú 5300
manns (2008) og ná sóknarmörk í
norðri til bæjarmarka Mosfellsbæjar. Núverandi formaður
sóknarnefndar er Níels Árni Lund.
Snemma var farið að huga að því að söfnuðurinn fengi þak
yfir höfuðið og guðshús risi í Grafarholti.
Undirbúningsnefnd um kirkjubyggingu hóf
störf 2005 og síðan byggingarnefnd frá árinu 2006.
Formaður beggja nefnda var Stefán Ragnar Hjálmarsson,
byggingatæknifræðingur, en auk hans störfuðu
í byggingarnefndinni sóknarpresturinn og Hreinn Ólafsson
tæknifræðingur. Herra Karl
Sigurbjörnsson, biskup, tók fyrsta skóflustunguna
að nýju kirkjunni miðvikudaginn 8. ágúst 2007.
Kirkjan hefur reis með undraverðum
hraða og mun það teljast einsdæmi að vígð sé kirkja fyrir
aðeins fimm ára gamlan söfnuð í Þjóðkirkjunni.
Við byggingu kirkjunnar var ákveðið að fara nýjar leiðir
að því markmiði, að
söfnuðurinn fengi fagra kirkju, en um
leið að gætt yrði hagkvæmni og lítillar
skuldasöfnunar. Kirkjuráð með biskup Íslands í broddi
fylkingar hafði forgöngu um samstarf við Grafarholtssókn um
kirkjubygginguna og er það í fyrsta sinn,
sem yfirstjórn Þjóðkirkjunnar og einstök sókn vinna svo náið
saman að kirkjubyggingu. Hefur Jöfnunarsjóður sókna styrkt
kirkjubygginguna myndarlega.
Guðríðarkirkja var fyrsta kirkja á
Íslandi sem byggð var samkvæmt lokuðu
alútboði. Fjórir verktakar tóku þátt
í því og varð Sveinbjörn Sigurðsson
hf. hlutskarpastur. Arkitektar kirkjunnar
voru Þórður Þorvaldsson og Guðrún Ingvarsdóttir hjá
Arkþingi ehf. Með Arkþingi ehf. unnu Landhönnun, Almenna
Verkfræðistofan, Raftákn og Trivium ráðgjöf að gerð
tillögunnar. Yfirsmiður kirkjunnar var
Finnur Jóhannsson.
Við hönnun kirkjunnar var farin sú óvenjulega leið að ramma
kirkjuskip og safnaðarsali inn með tveimur görðum.
Austurgarðurinn myndar því eins konar þrívíða altaristöflu
handan við altarið sem tekur breytingum í takt við
árstíðirnar og veitir jafnframt birtu og dýpt inn í
kirkjurýmið. Garðana hannaði Hermann
Ólafsson hjá Landhönnun
með aðstoð Péturs Jónssonar og Höllu
Hrundar Pétursdóttur hjá Landark.
Reynir Sýrusson húsgagnahönnuður hannaði
flestar innréttingar hússins í samráði við arkitekta
þess. Stólar, altari, grátur og
sálmatafla voru smíðuð hjá Beyki ehf.
Altaristaflan er utanhúss og sést gegnum risastóran glugga.
Innviðir kirkjunnar eru úr birki, sem
gefur henni hlýtt og létt yfirbragð. |