|
Háteigskirkja er í Háteigsprestakalli í
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Háteigssöfnuður var stofnaður
1952 og kirkjan var vígð 19. desember 1965. Þar eru alloft haldnir
tónleikar.
Háteigsprestakall var stofnað
með lögum 17. júlí 1952, en árið 1963 breyttust sóknarmörk með stofnun
Grensásprestakalls. Í upphafi var söfnuðurinn án kirkju, en messað var
í Fossvogskapellu og í hátíðarsal Sjómannaskólans. Háteigskirkja var
hönnuð af Halldóri H. Jónssyni arkitekt. Byggingameistari var Þórður
Jasonarson. Þótt ýmsu væri ólokið var kirkjan vígð á aðventu 1965. Það
var þáverandi biskup Íslands, hr. Sigurbjörn Einarsson sem vígði
kirkjuna að viðstöddu fjölmenni. |