|
Keflavíkurkirkja er í Keflavíkurprestakalli í
Kjalarnesprófstsdæmi. Hún er teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni,
arkitekt og byggð árið 1914 eins og sjá má framan á kirkjuturni.
Hins vegar var kirkjan vígð 1915, hinn 14. febrúar. Staður var
kirkjunni valinn í samráði við arkitektinn haustið 1913. Kirkja
hafði ekki staðið áður á þessum stað.
Um aldamótin hafði að
vísu verið langt komið byggingu kirkju, sem Guðmundur Jakobsson
hafði teiknað og smíðað en sú kirkja, sem þá var að heita má
fullgerð, skemmdist í óveðri í nóv. 1902 og var smíði hennar
þá hætt. Altaristaflan er eftir Ásgrím Jónsson og sýnir Jesúm
flytja Fjallræðuna; hefur hún verið í kirkjunni allt frá upphafi.
Steindir gluggar eftir Benedikt Gunnarsson, myndlistarmann, voru
settir í glugga kórs og framkirkju árið 1976. |