|
Lindakirkja er í
Lindaprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Lindasókn í Kópavogi var stofnuð í febrúar 2002 og varð að
prestakalli sama ár. Fyrsta skóflustunga að kirkjunni
var tekin í febrúar 2007 og í ágúst 2008 var samið um annan
áfanga verksins, fullfrágenginn sal og safnaðaraðstöðu.
Síðasta guðsþjónustan var haldin í Salaskóla kl. 11:00 14.
desember 2008 og kl. 17:00 sama dag vígði biskup Íslands
safnaðarsal kirkjunnar. Fyrsta guðsþjónustan fór síðan
fram sunnudaginn 21. desember s.á. Við vígsluna söng
kór safnaðarins undir stjórn Keith Reed organista og Helga
Magnúsdóttir söng einsöng.
Arkitektastofan ASK varð fyrir valinu eftir útboð. Lóð
kirkjunnar er í svonefndum Hádegishólum við gatnamót
Fífuhvammsvegar og Salavegar. Nýr grafreitur liggur að
kirkjunni, sem er óvenjulegt við nýjar kirkjur í þéttbýli nú
á dögum.
Kirkjuna prýða steindir gluggar eftir Gerði Helgadóttur
myndhöggvara. |