|
Mosfellskirkja í Mosfellsdal er í
Mosfellsprestakalli í Kjalarnesprófastsdæmi. Hún var vígð 4.
apríl 1965 af biskupi. Hún er gerð eftir teikningu Ragnars
Emilssonar að undangenginni samkeppni. Kirkjan er byggð úr
steinsteypu, sperrur eru úr járni en þak klætt eiri svo og
kirkjuturninn sem stendur á þrem súlum upp af austurhorni
kirkjunnar. Yfirsmiður var Sigurbjörn Ágústsson,
húsasmíðameistari í Hafnarfirði, uppsetningu á sperrum og
þakgrind annaðist Leifur Loftsson, Mosfellssveit. Allir fletir
kirkjunnar eru þríhyrningslaga. Í kirkjunni eru sæti fyrir 108
manns. Gömul og fræg klukka er í kirkjunni, talin vera frá 15.
eða 16. öld; um hana er lítið vitað. Klukkan er afar formfögur
og hljómgóð.
Mosfellskirkja er
sjálfseignarstofnun. Hún hefur tekjur af sölu heits vatns, sem Stefán
Þorláksson lét henni eftir í erfðaskrá. Biskup Íslands, sýslumaður og
staðarprestur mynda stjórn kirkjunnar. Brjóstmynd af Stefáni eftir
Sigurjón Ólafsson, myndhöggvara, stendur fyrir framan kirkjuna.
Kirkjugarðurinn umhverfis hana er forn. Hann var stækkaður, þegar
núverandi kirkja var byggð. Ofan við hann er minnisvarði um séra
Magnús Grímsson
(1825-60), sem var maður fjölhæfur, skáld og leikritahöfundur.
Hann lét til sín taka í fornleifa- og náttúrufræði. Hann
aðstoðaði Jón Árnason við söfnun til og útgáfu fyrsta þjóðsagnasafns,
sem kom út á íslenzku (Íslenzk ævintýri 1852) og þýddi margar bækur.
Hann smíðaði m.a. sláttuvél, róðrarvél og vatnsvél. |