|
Seltjarnarneskirkja
er í Seltjarnarnesprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra.
Í kirknatali Páls biskups Jónssonar í Skálholti frá
því um 1200 er fyrst getið um kirkju í Nesi við Seltjörn (Dipl.Isl.
XII,9). Var hún prestsskyldarkirkja, sem sýnir það, að Nes
var í tölu stórbýla og kirkjan hefur þá væntanlega átt
einhverjar eignir, e.t.v. þriðjung úr landi Ness eins og hún
átti samkvæmt fyrsta máldaga hennar, sem kunnur er, en það
er Vilchinsmáldagi frá 1397. Nes var að fornu talin 120
hundraða jörð.
Í Vilchinsmáldaga vekur einkum athygli, hve kirkjan
er auðug að jörðum.(Bps. A,II,2) Hún á þriðjung í heimalandi
í Nesi með rekum, skógum og afréttum. Þá á hún jarðirnar
Eiði, Bakka og Bygggarð, en þær hafa væntanlega allar byggst
út úr Neslandi. Síðan bætist við Árland, sem Ólafur Lárusson
telur, að sé Ártún í Mosfellssveit (Byggð og saga,180-198).
Þá á kirkjan ýmis ítök svo sem fjórðung af veiði í Elliðaánum og
rekaréttindi á tveimur jörðum.
Afar
lítið er hægt að ráða af máldaganum frá 1397 um kirkjubygginguna í Nesi í lok
14. aldar. Þar er aðeins talað um tvo glerglugga á henni og hinn þriðja, sem sé
brotinn. Hörður Ágústson telur gluggafjöldann benda til þess, að þessi kirkja í
Nesi hafi verið timburkirkja. Kirkjan á 6 manna messuklæði, 3 kantarakápur og 4
altarisklæði með dúkum. Af merkisgripum má nefna 3 kaleika, fornan róðukross,
smelltan kross og font með skírnarkatli. Kirkjan á 11 norrænubækur, lesbækur
fyrir alla helgidaga kirkjuársins og líknesi tvö. Var annað af verndardýrlingi
kirkjunnar, heilögum Nikulási og hitt af heilagri Önnu. Það vekur athygli, að
samkvæmt þessum eina máldaga, sem til er úr kaþólskum sið, hefur Neskirkja verið
mun auðugri að jörðum en kirkjan í Reykjavík. Þykir það benda til þess, að lengi
hafi mun ríkari höfðingjar búið að Nesi en í Vík.
Í fyrstu máldagabók, sem til er í Skálholtsbiskupsdæmi eftir siðaskipti, og
kennd er við Gísla biskup Jónsson, kemur fram, að jarðeignir kirkjunnar í Nesi
eru hinar sömu og voru fyrir siðaskiptin. Að vísu mun þar ranghermt um Eiði, því
að sú jörð lenti undir konung 1553, en máldagabókin er frá 1575 (Bps.A II,2.).
Hins vegar vekur athygli, að Neskirkja virðist nú fátæk orðin af skrúða og
áhöldum(ornamernta og instrumenta). Aðeins eru nefnd fern messuklæði, tveir
kaleikar og tvö altarisklæði. Kirkjan í Vík var í lok 16. aldar orðin auðugri af
þessum lausu munum en Neskirkja. Við þetta vakna ýmsar spurningar eins þær,
hvort Nes hafi orðið hart úti við eignaupptöku siðskiptanna.
Samkeppni fór fram um teikningar að kirkjunni og hlaut tillaga Harðar
Björnssonar og samstarfsmanns hans Harðar Harðarsonar, 1. verðlaun.
Ákveðið var að byggja eftir verðlaunateikningunni, en systkynin í Pálsbæ höfðu
gefið lóð undir kirkjuna.
Hér á eftir fer stutt lýsing á kirkjunni: Greiður aðgangur er inn á báðar
hæðir kirkjunnar, en kjallari eða jarðhæð er undir kirkjunni, þar sem eru
skrifstofur sóknarprests, organista og kirkjuvarðar. Þar er einnig salur
þar sem messað var frá jóladegi 1985 til vígsludags 19. febrúar 1989. Þar
er hægt að loka af fyrir kennslustofu og vinnu með smærri hópum. Á neðri
hæð er einnig stór salur, sem notaður er fyrir æskulýðsstarfsemi.
Uppbygging kirkjunnar er þannig, að veggir eru steyptir, en þök léttbyggð.
Þak kirkjuskipsins er þrístrent og hvílir á steyptum skífum, en burðarviðir eru
úr límtré. Einnig halda límtré uppi þökum útbygginga, sem hvíla á sömu
undirstöðum auk minni undirstaða. Límtrén eru sýnileg inni, en á milli
þeirra er klætt með furu. Þakið er klætt að utan með hvítum stálplötum.
Gluggaband er upp við þak milli aðalþaks og útbygginga hornrétt á
þakflötinn allt í kring og auk þess eru gluggar upp við þak útbygginga.
Rými yfir skrúðhúsi og forkirkju er nýtt fyrir kirkjugesti og er þar rúm fyrir
40 manns, en á aðalgólfi er rúmt um 235 manns, að meðtöldu söngfólki.
Safnaðarsalurinn uppi var tekinn í notkun á hvítasunnu 1990. Í
framtíðinni er stefnt að því að nýta rými yfir andyri og snyrtingum, svo og
eldhúsi, en þar er hægt að fá um 50-60 manns í sæti umfram þau, sem komast fyrir
á aðalgólfi, en það eru um 100 manns.
Kristín Friðbjarnardóttir, formaður sóknarnefndar frá stofnun
sóknarinnar árið 1974-1990 tók fyrstu skóflustunguna að kirkjunni þann 16. ágúst
1981, en ekki var hafist handa við bygginguna fyrr en á vordögum 1982.
Á jóladag árið 1985 vígði þáverandi biskup Íslands, herra Pétur Sigurgeirsson
guðsþjónustusalinn á neðri hæð kirkjunnar, en þá var einnig vígð skírnarskál,
sem enn er í notkun en hún var gjöf frá Eyjólfi og Ernu Kolbeins. Þá keypti
söfnuðurinn lítið fjagra radda orgel, sem enn er í notkun. Stefnt er að
því að festa kaup á nýju orgeli, sem hæfir kirkjunni á þessu ári.
Hinn 19. febrúar 1989 vígði Herra Pétur Sigurgeirsson síðan aðalkirkjuskipið.
Fáa kirkjumuni á söfnuðurinn enn sem komið er. Þó má nefna
altarissilfur, sem teiknað var af Herði Björnssyni og smíðað af Vali Fannar,
gullsmið. Það var gefið til kirkjunnar af Lions klúbbi Seltjarnarness þann
3. október 1987. Silfrið var fyrst tekið í notkun þann 4. október auk
sérbikara, sem pantaðir voru frá Danmörku.
Kirkjuklukkur voru vígðar á hvítasunnudag, þann 22. maí 1988.
Þær voru smíðaðar af John Taylor og Co. í Bretlandi og voru einnig gjafir til
kirkjunnar frá Kvenfélaginu Seltjörn, Soroptimistklúbb Seltjarnarness og
afkomendum Þuríðar Helgadóttur kennara og Sigurðar Jónssonar fyrrverandi
skólastjóra Mýrarhúsaskóla til minningar um Þuríði.
Fjóra hökla á söfnuðurinn, hvítan, grænan, rauðan og fjólubláan, sem einnig hafa
verið gjafir til kirkjunnar. Sálmabækur í eigu safnaðar eru u.þ.b. 250.
Á vígsludegi kirkjunnar bárust kirkjunni að gjöf frá Seltjarnarnesbæ tveir
silfurkertastjakar á altari. Þann dag bárust kirkjunni einnig tvær
áletraðar Biblíur og tvær áletraðar sálmabækur, önnur frá Dómkirkjusöfnuðinum og
hin frá frú Emmu Guðmundsdóttur. Á fyrsta sunnudegi í aðventu árið 1989
gaf Margrét Sigurðardóttir ljósprentaða útgáfu af Guðbrandsbiblíu til
minningarum mann sinn Þórð Guðmundsson.
Systkynin Kristín, Ásgeir, Guðmundur og Baldur Ásgeirsbörn gáfu
kirkjunni veglega útihurð til minningar um foreldra sína Soffíu Guðmundsdóttur
og Ásgeir M. Ásgeirsson
Kvenfélagið Seltjörn safnaði í bæjarfélaginu fyrir öllum stólum í
kirkjunni og gaf auk þess 50 fermingarkirtla fyrir fyrstu fermingar vorið 1987.
Kvenfélagið hefur þar að auki gefið ýmsan útbúnað í eldhús, m.a. uppþvottavél.
Kirkjan er vel útbúin öllum tækjum í eldhúsi og á
skrifstofum. Hljóðkerfi í kirkjunni er þó ábótavant og stendur
það til bóta. Á skrifstofu prests er ný Macintosh tölva og allir
starfsmenn kirkjunnar hafa aðgang að ljósritunarvél og nýju fax-tæki.
Nýjasta gjöf til kirkjunnar er nýr Yamaha flygill, sem var gjöf frá
félagasamtökum, sem starfa á Seltjarnarnesi.
Heimild: Vefsetur kirkjunnar. |