|
Víðistaðakirkja er í Víðistaðaprestakalli í
Kjalarnesprófastsdæmi. Víðistaðaprestakall var stofnað árið
1977. Fyrst var guðsþjónustuhald í Hafnarfjarðarkirkju en síðar
í kapellu í Hrafnistu. Var sú kapella vígð af biskupi 27. nóv.
1977. Var fljótlega farið að huga að kirkjubyggingu. Úthlutaði
bærinn söfnuðinum lóð í landi Víðistaða fyrir kirkju og
safnaðarheimili. Var kirkjan teiknuð af Óla G. H. Þórðarsyni,
arkitekt.
Fyrsta skóflustungan var tekin 23. apríl 1981. Kirkjan var
vígð 28. febrúar 1988. Er gert ráð fyrir að um 600 manns geti
rúmast í sætum kirkjunnar. Athyglisverð er listskreyting eftir
Baltasar Semper, freskumyndir. |