|
Ytri-Njarðvíkurkirkja er í
Njarðvíkurpresta-kalli í Kjalarnesprófastsdæmi. Hún var vígð á
sumardaginn fyrsta, 19. apríl 1979 eða tæpum áratug eftir að
fyrsta skóflustungan var tekin.
Kirkjan er teiknuð af arkitektunum
Ormari Þór Guðmundssyni og Örnólfi Hall. Hún er 400 fermetrar
að grunnfleti og undir henni er 108 fermetra kjallari. Kirkjuskip
rúmar 230 manns í sæti en safnaðarsalur, sem opnanlegur er inn í
kirkjuskipið, rúmar 100 manns. |