Bíldudalskirkja,

Meira um Ísland


BÍLDUDALSKIRKJA
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Bildudalskirkja er í Bíldudalsprestakalli í Barðastrandarprófastsdæmi.  Bíldudalur er kauptún við utanverðan Bíldudalsvog að vestan.  Kirkja hefur verið í Bíldudal frá 1906, þegar  hún var flutt þangað frá Otradal, og þar hefur setið prestur þar til á síðustu árum.

Meðal fornra gripa í kirkjunni eru skírnarsár, tvær altaristöflur, kaleikur og patina úr silfri.  Þórarinn B. Þorláksson, listmálari, málaði aðra töfluna, sem sýnir Maríu við gröf Krists, sem sagði þá: „Kona, því grætur þú?”  Hin taflan er af kvöldmáltíðinni frá 1737.  Á predikunarstólnum, sem er frá 1699 eru myndir af Kiristi og postulunum.  Selárdalskirkjur tilheyra prestakallinu.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM