Brjánslækjarkirkja,

Meira um Ísland


BRJÁNSLÆKJARKIRKJA
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Brjánslækjarkirkja er í Tálknafjarðarprestakalli í Barðastrandarprófastsdæmi.  Brjánslækur er fornt höfuðból, kirkjustaður og lengi prestssetur við mynni Vatnsfjarðar á Barðaströnd.  Katólskar kirkjur þar voru helgaðar heilögum Gregoríusi. Útkirkja var í Haga.

Prestakallið var lagt niður 1970 og sóknir þess lagðar til Sauðlauksdals.  Þá hafði enginn prestur setið á Brjánslæk frá 1935.

Núverandi kirkja var vígð 1908.  Hún var byggð eftir teikningum Rögnvalds Ólafssonar.  Þórarinn B. Þorláksson, listmálari, málaði altaristöfluna 1912.  Hún sýnir Krist með lamb í fanginu.  Í kirkjunni er kaleikur frá 1804.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM