Flateyrarkirkja er í Holtsprestakalli í Ísafjarðarprófastsdæmi.Flateyri er kauptún við norðanverðan Önundarfjörð.
Kirkjan var byggð úr steinsteypu og vígð 1936 og henni er
þjónað frá Holti.Brynjólfur
Þórðarson, listmálari, málaði altaristöfluna og Leifur Breiðfjörð
gerði fimm steinda glugga í kirkjuna.Vínkanna er úr kristal og aðrir merkir gripir eru kaleikur
og patina, ljósakróna og ljósastjaki.