|
Hagakirkja er í Tálknafjarðarprestakalli
í Barðastrandarprófastsdæmi. Í Haga á Barðaströnd var kirkja helguð heilögum Nikulási
í katólskum sið. Þarna
var útkirkja frá Brjánslæk á meðan þar var prestakall, en síðan
var sóknin lögð til Sauðlauksdals.
Núverandi kirkja var byggð 1897-1899 og vígð 12. nóvember
1899. Yfirsmiður var
Magnús Magnússon frá Flatey.
Eigendur
kirkjunnar voru Björn Sigurðsson, kaupmaður í Flatey, og fleiri.
Þeir höfðu látið smíða
kirkju í Haga 1892 en hún fauk snemma vetrar 1897 og önnur
var reist strax í staðinn.
Hagakirkja var bændakirkja til 1952, þegar söfnuðurinn tók
við henni af eigendunum, Hákoni J. Kristóferssyni og Nielsi P.
Sigurðssyni í Reykjavík.
Kirkjan
er byggð úr timbri og allvel búin gripum, m.a. kaleik úr gulli og
silfri, gömlu skírnarfati úr eiri með upphleyptum myndum, fjórum
altarisstjökum úr kopar, róðukrossi á altari og altarisklæðum
með ártalinu 1649. Predikunarstóllinn
með myndum af guðspjallamönnunum er frá 1745.
Anker Lund málaði myndina af kvöldmáltíðinni í Emmaus á
altaristöflunni árið 1900. |