Hnífsdalskapella,

Meira um Ísland


HNÍFSDALSKAPELLA
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Hnífsdalskapella er í Ísafjarðarprestakalli í Ísafjarðarprófastsdæmi.  Hnífsdalur er þorp við utan- og vestanverðan Skutulsfjörð, skammt frá Ísafjarðarkaupsstað.

Guðsþjónustur fóru fram í barnaskólanum til 1953, þegar hann fauk í heilu lagi af grunninum í miðri kennslustund í febrúar það ár.  Ekki urðu slys á fólki.

Annar skóli var reistur á sama stað og kapella með.  Kór hennar er í austurenda hússins og orgelstúkan í vesturendanum.  Á milli eru tvær kennslustofur, sem opnast með skilveggjum.  Þá er hægt að bjóða 160 manns til sætis í kapellunni.  Hún var vígð á föstudaginn langa 1955 og er þjónað frá Ísafirði.

Meðal gripa kapellunnar  eru kristslíkan, róðukross, kaleikur og patína úr silfri.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM