|
Hólmavíkurkirkja er í Hólmavíkurprestakalli í
Húnavatnsprófastsdæmi. Smíði fyrstu kirkju á Hólmavík hófst
1957, en kirkjugarðurinn var vígður við kauptúnið 1938 og
prestsetur hefur verið þar frá 1948. Biskup Íslands vígði kirkjuna
á uppstigningardag 1968. Hun er byggð eftir teikningu Gunnars
Ólafssonar arkitekts, 211 m² og 1300 m³. Gunnar lézt frá verkinu og
lauk Sveinn Kjarvar, innanhússarkitekt, tekiningum og teiknaði
innréttingar og búnað, nema altari og stól. Er hvort tveggja úr
furu, sem öll bygging kirkjunnar innan.
Hólmavíkurkirkja er steinsteypt hús
undir háu valmaþaki, að grunnformi krosskirkja, sem kallað
er, þegar útbrot er á kirkjuskipi báðum megin á mörkum
kirkjuskips og kórs. Fæst þar rými fyrir hitunartæki og
líkhús annars vegar en skrúðhús hins vegar, hvort tveggja
með sérinngangi, en kirkjudyr eru til beggja hliða á forkirkju, hentug skipan með
tilliti til veðra og vindstöðu. Við rúmgóða forkirkjuna er
geymsla, fatahengi og snyrting, en yfir söngloft, þar sem
prýðilega rúm er um hljóðfærið, Allan 202, 36 radda með
tveimur hljómborðum og fótspili, vígt á sjómannadaginn 1978.
þar uppi er og töluvert sætarými, en niðri í kirkjunni ætluð
um 130 sæti í stólaröðum á gulu múrsteinsgólfi. Allt um
viðarlitaðar furuþiljur og loftklæðningu er kirkjusalurinn
bjartur, því að 6 stórir smárúðugluggar eru á hvorri hlið.
Litgler er í báðum kórgluggum.
Á predikunarstól og altari eru
eirskildir til skrauts og yfir altari krosstákn en eigi
tafla. Altarisdúkar eru 2, allt minningagjafir, sem hinir
mörgu og góðu gripir kirkjunnar, en hún er áheita- og
gjafasæl í mestan máta. Altarisstjakar eru 4 og 2 þeirra af
kopar og hinir af eir. Kaleikar eru 2, forkunnarfagrir
silfurgripir með patínu, annar gullhúðaður, hinn settur
steinum og er hann innlend smíði.
Fontsumbúnaðurinn er af íslenzku grágrýti og furu,
en skírnarlaugin leirskál, gerð af Lökken Kjarval. Ýmislegt fleira
mætti hér telja í skrúða og kirkjugripum, s.s. einskertis stjaka af
ónixsteini í kór og afsteypu hins fræga líkneskis Jóhannesar
postula í Niðarósdómkirkju, sem prófastshjónin séra Andrés
Ólafsson og Arndís Benediktsdóttir færðu kirkjunni, þegar séra
Andrés Ólafsson lét af þjónustu í Hólmavíkurprestakalli 1983, en
aðeins skal getið klukknanna, sem eru frá Capanni á Ítalíu. Þeim
er stýrt með rafbúnaði. Ein gefur dýpsta tóninn, Sol, önnur
tóninn Si, en hin þriðja Re, og er hún gjöf frá kvenfélaginu
Glæðum, sem hefur styrkt kirkjuna mjög á byggingartíma og síðar.
Kirkjuklukkurnar voru vígðar til kalls og keveðju á annan sunnudag
eftir trinitatis 1979, sem var Jónsmessudagur.
Ferðamönnum, sem vilja
skoða kirkjuna skal bent á, að prestsetrið er á Kópanesbraut 17,
en lykill einnig hjá kirkjuverði.
Upplýsingar frá
Hólmavíkurkirkju. |