|
Hrafnseyrarkirkja er í Þingeyrarprestakalli í
Ísafjarðarprófastsdæmi. Á Hrafnseyri var kirkja, helguð Maríu
guðsmóður og Pétri postula, í katólskum sið. Álftamýrarsókn
var lögð til Hrafnseyrar 1880 en sameinuð Hrafnseyrarsókn 1967.
Hrafnseyrarpresta-kall var lagt niður og sóknin lögð til
Bíldudals 1970 en prestur hafði þá ekki setið á Hrafnseyri frá
1961. Frá 1975 hefur Hrafnseyri verið þjónað frá Þingeyri og
hún var formlega lögð til Þingeyrar árið 1981. Núverandi kirkja
á Hrafnseyri var vígð 28. febrúar 1886. Hún er byggð úr timbri,
járnvarin. Kirkjan hefur tvisvar fokið af grunni, en í hvorugt
skiptið laskaðist hún neitt að ráði og var sett aftur á
grunninn.
Árið 1897 fóru fram
endurbætur á kirkjunni og var þá meðal annars smíðaður á
hana nýr turn. Árið 1910 fékk hún svo aftur gagngerðar
endurbætur og var endurvígð 20. nóv. 1910.
Af góðum gripum kirkjunnar má nefna tvö sett af gömlum
ljósastikum, kaleik og patíunu frá ofanverðri 17. öld og fornan
þjónustukaleik. Tvær klukkur fornar eru í turni, skírnarsár
skorinn af Ríkharði Jónssyni myndhöggvara og æskuverk eftir Kára
Eiríksson listmálara vinstra megin í kór. Ljósahjálmur og
vegglampar eru í kirkjunni úr dómkirkjunni í Reykjavík, þangað
komnir, þegar gasljós voru sett í hana. |