|
Hraunskirkja er í Þingeyrarprestakalli í Ísafjarðarprófastsdæmi.
Hraun er eyðibýli og kirkjustaður í Keldudal. Þar voru katólskar
kirkjur helgaðar Þorláki biskupi helga og útkirkja frá Söndum og síðan
1932 frá Þingeyri. Kirkjan, sem nú stendur þar, var byggð og vígð
1885. Hún var aflögð sem sóknarkirkja árið 1971,
þegar dalurinn fór í eyði. Smiður var
Aðalsteinn Pálsson, bóndi á Hrauni, sem gaf söfnuðinum kirkjuna. Hún
stendur rétt utan gamla kirkjugarðsins, þar sem eldri kirkjur stóðu.
Í kirkjunni kemur fram elzta formgerð timburkirkna. Sérkenni hennar
er þakspónninn, sem sýnir, hvernig hún var smíðuð upphaflega, þótt
þakið væri fljótlega klætt með bárujárni.
Niðurrif kirkjunnar var íbígerð og munir hennar
voru fjarlægðir en Þjóðminjasafnið skarst í leikinn og
söfnuðurinn tók að sér gagngerar endurbætur á henni á árunum
1998-99. Hún var endurvígð og tekin í notkun árið 2000. Kirkjuna prýða merkir gripir, m.a.
prédíkunarstóll, sem er talinn vera verk sera Hjalta
Þorsteinssonar í Vatnsfirði (1692-1742), og tvær
altaristöflur ofan altaris. Hin neðri er með
áletruninni Eggerd Ionsen A. Røyn 1751 en óvíst er um aldur
hinnar efri. Uppsprettan Gvendarbrunnur er skammt frá
kirkjunni og þaðan þótti sjálfsagt að taka vatn til skírna.
Keldudalur hefur verið óbyggður síðan 1987. |