|
Hvítasunnukirkjan á Ísafirði var formlega
stofnuð hinn 1. janúar 1945 undir nafninu „Salemsöfnuðurinn
Ísafirði". Stofnendur voru 10 talsins og eru 4 þeirra enn á
lífi og taka virkan þátt í starfi kirkjunnar. Árið 1993 var
nafninu breytt í Hvítasunnukirkjan Salem í samræmi við nöfn
annarra Hvítasunnukirkna á landinu.
Fyrsti forstöðumaður safnaðarins á
Ísafirði var Arnulf Kyvik, en hann var einnig stofnandi
kirkjunnar. Aðrir forstöðumenn hafa verið: Erik Martinsson,
Göte og Mary Anderson, Gunnar og Margareta Lindblom, Indriði
og Carolyn Kristjánsson. Fyrstu forstöðuhjónin sem bæði eru
íslensk voru Grétar Theódór Birgisson og Katrín
Þorsteinsdóttir, sem veittu starfinu forstöðu frá árinu
1993-1997. Þau starfa nú á Akureyri. Við starfi þeirra tóku
hjónin Róbert Grétar Gunnarsson og Esther Christina
Gunnarsson. Frá október 1999 hefur Kristinn P. Birgisson
verið starfandi forstöðumaður í Salem. Stjórn
safnaðarins skipa forstöðumaður
ásamt öldungi og tveimur stjórnarmönnum. Hinn 17. janúar 1945 keypti
Arnulf Kyvik og söfnuðurinn sameiginlega ásamt Kristínu Sæmundsdóttur,
féhirðis safnaðarins, húseignina Fjarðarstræti 24 undir starfsemi
kirkjunnar. Tveimur árum síðar ánöfnuðu Arnulf og Kristín sínum hluta
hússins til safnaðarins. Hinn 6. júlí 1947 varð húsið að fullu eign
safnaðarins.
Árið 1988
hóf söfnuðurinn gagngerar endurbætur á húsinu og hefur kirkjan
enn aðsetur að Fjarðarstræti 24. Árið 1946 stofnaði Sigfús B.
Valdimarsson Sjómannastarfið Salem. Sigfús var einn af
frumkvöðlum Hvítasunnukirkjunnar á Ísafirði. Sjómannastarfið
var enn í fullum gangi undir öruggri stjórn stofnandans er hann
lést 1996. Sigfús heimsótti hvert einasta skip sem hafði viðdvöl
í Ísafjarðarhöfn, gaf sjómönnum Biblíur og boðaði þeim
fagnaðarerindið! Þá hefur blómlegt barnastarf verið rekið í
Salem til margra ára og gengur það nú undir nafninu
Sunnudagaskóli. Þar hafa margir Ísfirðingar fengið gott
vegarnesti inn í framtíðina og verður svo um ókomin ár.
Upplýsingar frá
Hvítasunnukirkjunni.
|