Kirkjubólskirkja,

Meira um Ísland


KIRKJUBÓLSKIRKJA
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Kirkjubólskirkja er í Holtsprestakalli í Ísafjarðarprófastsdæmi. Kirkjuból var stórbýli og er kirkjustaður í Valþjófsdal við Önundarfjörð. Þar er útkirkja frá Holti, sem var helguð Maríu guðsmóður og Þorláki biskupi helga í katólskri tíð. Kirkjan, sem nú stendur, er timburkirkja, byggð 1886 og endurbyggð í upphaflegri mynd 1978. Hún á kaleik og patínu vrá 1792 og fornan skírnarsá úr kopar. Staðurinn er einn fjögurra kirkjustaða við Önundarfjörð. Hinir eru í Bjarnardal, í Korpudal og á Hvilftarströnd (Sela-Kirkjuból). Fyrrum voru bænhús á öllum þeim stöðum.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM