|
Kollafjarðarneskirkja er í Hólmavíkurprestakalli
í Húnavatnaprófastsdæmi. Kollafjarðarnes
er kirkjustaður og bær við norðanverðan Kollafjörð.
Árið 1907 voru Fells- og Tröllatungusóknir sameinaðar
Kollafjarðarnesi, þar sem prestar sátu um árabil. Árið 1950 var þessi sókn lögð til Staðar í Steingrímsfirði
og hefur verið þjónað frá Hólmavík síðan.
Núverandi kirkja í Kollafjarðarnesi var byggð úr
steinsteypu og vígð 5. september 1909.
Kaleikur og patina kirkjunnar eru frá 1711.
Hún hefur ljóskross á stöpli og á allstóra altaristöflu
(Kristur í grasagarðinum) eftir A. Dorph.
Á austurvegg er tafla með kvöldmáltíðinni, máluð á tré
og komin úr Fellskirkju. Á vængjum hennar eru áletranirnar H.Í.S. (Halldór
Bjarnason, sýslumaður) og A.B.D. (Ástríður Bjarnadóttir).
Hjónin gáfu Fellskirkju töfluna árið 1758. |