Mýrakirkja,

Meira um Ísland


MÝRAKIRKJA
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Mýrakirkja er í Þingeyrarprestakalli í Ísafjarðarprófastsdæmi. Mýrar eru bær og kirkjustaður við Dýrafjörð norðanverðan, undir innanverðu Mýrarfjalli. Þar er útkirkja frá Þingeyri. Kirkjan, sem nú stendur, var byggð árið 1897 úr norskum viði, sem hvalveiðimenn fluttu til landsins.

Fyrrum var hún bændakirkja en söfnuðurinn tók við henni 1907. Árin 1952-1953 var gert við hana og eftir miklar endurbætur var hún endurvígð 1953. Altaristaflan er frá 1775 og lítill altarisskápur með krossfestingarmynd og latneskri áletrun innan á vængjunum frá 1696.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM