|
Nauteyrarkirkja er í Vatnsfjarðarprestakalli
í Ísafjarðarprófastsdæmi. Kirkjan
var reist árið 1885, þegar sóknarkirkjan var flutt til Nauteyrar
frá Kirkjubóli í Langadal, þar sem hún hafði staðið öldum
saman.
Á Kirkjubóli er enn þá grafreitur. Kirkjusmiður var Jón Halldórsson á Laugabóli.
Kirkjan er úr timbri, bárujárnsklædd.
Hún er veglegt hús og tekur hátt á annað hundrað manns í
sæti. Setloft er í
henni.
Af merkum gripum
hennar má nefna fornan kaleik frá 1750, gerðan af Sigurði Þorsteinssyni,
silfursmiði í Kaupmannahöfn. Vegna
þunns jarðvegs á Nauteyri eru grafir grunnar og leiðin há. |