|
Núpskirkja er í Þingeyrarprestakalli í Ísafjarðarprófastsdæmi.
Núpur er fornt höfuðból og nú skólasetur og kirkjustaður
við norðanverðan Dýrafjörð.
Hann tilheyrði Dýrafjarðarþingum, þar til Þingeyri tók
við.
Katólskar kirkjur
staðarins voru helgaðar Jóhannesi skírara.
Kirkjan, sem nú stendur, var byggð úr steinsteypu á árunum
1938-1939 og vígð 17. September 1939.
Embætti húsameistara ríkisins sá um teikningu hennar en
allt innandyra var gert samkvæmt teikningum og fyrirsögn séra
Sigtryggs Guðlaugssonar. Guðmundur
Jónsson, myndskeri frá Mosdal, skar út tákn og letur á prédikunarstólinn,
kirkjubekki, gráturnar, söngloftsbrún og hörpu á sönglofti.
Gréta og Jón Björnsson máluðu og myndskreyttu kirkjuna.
Meðal merkra muna kirkjunnar er kaleikur og patina frá 1774,
skírnarskál úr tini og skírnarsár, sem Ríkharður Jónsson skar út. Séra Sigtryggur Guðlaugsson
stofnaði unglingaskóla að Núpi snemma á 20. öld og kom upp skrúðgarðinum
Skrúði, þar sem stendur stytta af honum og Hjaltlínu Guðjónsdóttur,
konu hans. |