Otradalskirkja,

Meira um Ísland


OTRADALSKIRKJA
.

.

Ferđaáćtlanir
Rútur-Ferjur-Flug

Otradalskirkja er í Bíldudalsprestakalli í Barđastrandarprófastsdćmi. Otradalur var prestssetur og kirkjustađur áđur en sóknin var flutt til Bíldudals 1906. Presturinn flutti ekki fyrr en 1914.

Eyjólfur grái, sem drap Gísla Súrsson viđ Einhamar, átti ţar heima á söguöld.  Áđur en Gísli féll, hafđi hann drepiđ fimm af liđi hans og síđar dóu ţrír af sárum.  Enn sér fyrir fornum tóttum í Otradal.

Séra Jón Teitsson (1718-81; Hólabiskup) var prestur í Otradal.  Hann bauđ eitt sinn nágrannaprestinum séra Ţorláki Guđmundssyni (1711-1773) ađ messa og taka heimaprest og fólk hans til altaris.  Séra Jón hellti séra Ţorlák fullan fyrir messu, svo allt fór í handaskolum hjá honum.  Hann var dćmdur frá kjóli og kalli 1749 af ţessum sökum.  Séra Jón hafđi ásćlzt brauđ séra Ţorláks, Selárdal, en fékk ţađ samt ekki.  Sonur séra Ţorláks, séra Jón Ţorláksson, var ţá ţegar fćddur (1744-1819) í Selárdal.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM