Patreksfjarðarkirkja,

Meira um Ísland


PATREKSFJARÐARKIRKJA
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Patreksfjarðarkirkja er í Patreksfjarðarprestakalli í Barðastrandarprófastsdæmi.  Kirkja var ekki á Patreksfirði fyrr en á 20. öld, en bænhús var á Geiteyri í katólskri tíð.  Eyrarbúar áttu sókn til Sauðlauksdals þar til kirkja var byggð á Eyrum 1907.

Prestakallið var stofnað 1907 og náði til Eyrar og Laugardals.  Kirkjan var vígð á hvítasunnudag 19. maí.  Hún stendur á Geirseyri í miðjum bæ og blasir við af sjó og landi.  Kirkjuhúsið er úr steinsteypu en turninn úr timbri.  Sigurður Magnússon, héraðslæknir, gerði uppdrátt að kirkjunni og prestur hefur setið á Patreksfirði síðan 1909.  Erró gerði myndirnar, sem prýða predikunarstólinn, árið 1957 á 50 ára afmæli kirkjunnar.  Eftirgerð af mynd Carl Bloch, „Eitt er nauðsynlegt”, er altaristafla kirkjunnar.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM