|
Reykhólakirkja er í Reykhólaprestakalli
í Barðastrandarprófastsdæmi.
Reykhólar eru bær og kirkjustaður í Reykhólasveit.
Staðurinn var meðal mestu höfuðbóla landsins og mikil
hlunnindajörð vegna sjárvarfangs og æðarvarps í 300 eyjum og hólmum,
sem tilheyrðu henni.
Kirkjur
hafa staðið þar frá fornu fari og prestur hefur setið þar síðan
1941. Núverandi kirkja var vígð 1963 og meðal merkra muna
hennar er gylltur kaleikur og eftirmynd af Maríulíkneski úr eldri
kirkjum á staðnum, sem var flutt til Kristskirkju í Reykjavík.
Jón Thoroddsen keypti altaristöflu eftir Lövener frá 1834
í Danmörku að ósk móður sinnar fyrir kirkjuna.
Leifur Breiðfjörð gerði tvær steindar rúður, sem voru
settar í kirkjuna 1985. Legsteinn
Magnúsar Arasonar, sýslumanns (1599-1655), er í kirkjunni. |