Sæbólskirkja,

Meira um Ísland


SÆBÓLSKIRKJA
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Sæbólskirkja er í Þingeyrarprestakalli í Ísafjarðarprófastsdæmi. Sæból er bær og kirkjustaður á Ingjaldssandi, yzt við vestanverðan Önundarfjörð. Þar var kirkja helguð Maríu guðsmóður, Jóhannesi postula, Magnúsi Eyjajarli, Þorláki helga og Katrínu mey. Núpsstaður í Dýrafirði þjónaði Sæbólskirkju lengi þar til Þingeyri tók við.

Núverandi steinkirkja var vígð 29. september 1929. Gamla kirkjan fauk í Halaverðirnu 8. febrúar 1925 og brotnaði í spón.  Gamla kirkjan stóð vestar, eða í túninu við Sæból I.  Guðjón Samúelsson teiknaði núverandi kirkju.

Jón Sveinn Jónsson, bóndi á Sæbóli, skar út altarisgráður og bekki.  Jón var bróðir Guðmundar Jónssonar útskurðarmeistara á Ísafirði. Guðmundur Einarsson frá Miðdal gerði skírnarsáinn. Ljósahjálmur úr kopar frá 1649 er elzti gripur kirkjunnar. Mörg nöfn erlendra karlmanna eru greipt í hann, enda talið að hann sé gjöf frá erlendri skipshöfn, sem bjargaðist í land úr sjávarháska á Ingjaldssandi. Einnig er að finna fornan kaleik og patínu frá árunum 1733 og 1776. Ljóskrossinn er gjöf til minningar um séra Sigtrygg Guðlaugsson (1862-1959) á Núpi. Hann þjónaði Sæbólskirkju a.m.k. í 33 ár og talið er, að hann hafi farið 900 sinnum yfir Sandsheiði í embættiserindum. Legstaður hans er í Sæbólskirkjugarði.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM