|
Saurbæjarkirkja er í
Patreksfjarðrprestakalli í Barðastrandarprófastsdæmi.
Saurbær er bær og kirkjustaður á Rauðasandi.
Katólskar kirkjur voru helgaðar Maríu guðsmóður og Jóhannesi
postula. Kirkjan þar er
útkirkja frá Sauðlauksdal en var aðalkirkja allt fram á 17. öld. Núverandi kirkja var áður á Reykhólum, þar sem hún var
byggð skömmu eftir miðja 19. öld og vígð 1963.
Þegar hún var tekin niður, voru viðirnir merktir rækilega,
svo að hægt væri að reisa hana að nýju, því að hún þótti
merkileg frá byggingarfræðilegu sjónarmiði.
Þá var hrörleg bændakirkja í Saurbæ, sem fékk ekki nauðsynlegt
viðhald, og fauk loks í fárviðri í janúar 1966.
Prédikunarstóllinn stóð einn eftir,
þegar veðrinu slotaði.
Nokkrum árum síðar var ákveðið að reisa Reykhólakirkju
aftur í Saurbæ. Það tókst
með með átaki heimamanna og aðstoð Þjóðminjasafns og Húsafriðunarsjóðs.
Endurbyggingin tók nokkur ár og Hörður Ágústsson hafði
umsjón með henni. Gunnar
Guðmundsson, kirkjusmiður á Skjaldvararfossi á Barðaströnd, vann
verkið að mestu. Kirkjan
var vígð 5. september 1982. Altaristaflan
er gjöf frá Guðrúnu Eggertsdóttur eftir séra Hjalta Þorsteinsson
í Vatnsfirði. Hún sýnir
Guðrúnu með manni sínum, Birni, krjúpandi sitt hvorum megin við
kross Krists. Séra Páll
Björnsson í Selárdal við Arnarfjörð, sem ásótti galdramenn hvað
mest, fæddist á Bæ árið 1621. |