|
Staðarkirkja er í Reykhólaprestakalli í
Barðastrandarprófastsdæmi. Staður var stórbýli og kirkjustaður
á Reykjanesi á í Reykhólahreppi við Breiðafjörð.
Sóknarkirkjan þar var lögð af 1957
en kirkjan stendur enn og er í umsjá Þjóðminjasafnsins. Hún var
byggð 1864.
Katólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar Ólafi
helga Noregskon. Prestar sátu Stað til 1948 en þá var
prestssetrið flutt að Reykhólum, þar sem var áður útkirkja frá
Stað. |