Staðarkirkja
er í Bolungarvíkurprestakalli í Ísafjarðarprófastsdæmi. Staður var
prestssetur og kirkjustaður í Grunnavík í Jökulfjörðum.
Staðarprestakall var geysierfitt yfirferðar.
Bænhús var og er í Furufirði
og prestur þjónaði
Unaðsdalssókn á Snæfjallaströnd í 10 ár. Kirkjan var byggð á síðari
hluta 19. aldar.