|
Staðarkirkja er í Bolungarvíkurprestakalli í
Ísafjarðarprófastsdæmi. Staður er eyðibýli, fyrrum prestssetur
og kirkjustaður í Aðalvík við Staðarvatn. Meðal presta þar í
16 ár var séra Snorri Björnsson (1710-1803), síðar á Húsafelli
í Borgarfirði. Hornstrendingar vildu glettast við prest og kanna
galdrakunnáttu hans. Þeir fóru með löngu í líkkistu til kirkju
og báðu Snorra að jarða þennan niðursetning að norðan, sem
hefði sálast og þyrfti leg í kirkjugarði. Snorri gekk þögull og
þungbúinn kringum kistuna og kvað: Hér er komið kistuhró,
klambrað saman af ergi,
líkaminn er úr söltum sjó,
en sálina finn ég hvergi.
Hann bað komumenn að hverfa sem skjótast á
brott og reyna ekki að glettast við sig framar, sem þeir gerðu
ekki. |