|
Unaðsdalskirkja
er í Vatnsfjarðarprestakalli í Ísafjarðarprófastsdæmi.
Unaðsdalur er eyðibýli og kirkjustaður, næstyztur bæja á
Snæfjallaströnd.
Fyrrum mun hafa verið bænhús með kirkjugarði í Unaðsdal
og kirkjuvegur langur út að Snæfjöllum, yzta bæ á Snæfjallaströnd.
Þaðan var kirkjan flutt í Unaðsdal 1867 og sóknin var lögð
til Kirkjubólþinga með lögum árið 1880 og þjónað þaðan til
1908.
Þá tók Vigurprestur við í 10 ár unz Staðarprestur í
Grunnavík bætti öðrum 10 við.
Eftir 1928 hefur Unaðsdalskirkja verið útkirkja frá
Vatnsfirði, eins og lögin frá 1907 kváðu á um.
Um aldamótin 1900 voru 350 manns skráðir í sókninni en aðeins
150 árið 1907.
Kirkjan, sem nú stendur í Unaðsdal, var byggð 1897.
Hún er úr timbri með lofti og turni og stendur á sléttri
eyri við ósa Dalsár.
Fyrri kirkja stóð á gamla bænhússgrunninum í kirkjugarði
allmiklu ofar og neðst í túni.
Forn koparhjálmur úr Snæfjallakirkju er meðal góðra gripa
og einnig altaristafla eftir Anker Lund (Kristur að lækna Bartimeus
blinda) og Guðmundur „bíldur” Pálsson (†1888) skar út stóra
krossinn vinstra megin í kórnum.
Kirkjan á einnig gamla ljósahjálma og altarisstjaka og tvær
stórar klukkur í turni, önnur þeirra frá 1791. |